01apríl

The Light - The Album Leaf

"What lies behind us and what lies before us
Are small matters compared to what lies within us"

Halló, ég er sko í food coma! úff, fór út að borða með stellu og þyrí skjátum og gjörsamlega borðuðum yfir okkur! Skelltum okkur á kaffihornið náðum að spjalla og hlægja mikið. Ég hef nú ekkert bloggað síðan fyrir páska. Allavega voru páskarnir yndislegir. Æfingar á fullu! og svo var aðeins kíkt út og svona, svo var bara haft kósí. Reyndar fékk ég ekkert páskaegg:(  Ég hafði nú bara gott að því held ég. hehe

Í gær tók ég bóklega bílprófið og náði því skal ég seigja ykkur! ótrulegt enn satt! Þar sem ég var ekki búin að mæta í nærrum alla ökukennsluna og byrjaði að læra daginn áður enn prófið var! mæli samt ekki með þessari aðferð!  En ég náði allavega (: og er alsæl. Svo tekur maður verklega á afmælisdeginum 3. apríl  klukkan 8 um morguninn. Þannig eins gott að maður verður nógu vel sofin!

Næstu dagar eru eftir að vera erfiðir bæði andlega og líkamlega. Því nú styttist í frumsýninguna á Rocky Horror, og þessar æfingar taka á skal ég seigja ykkur! Maður æfir alla daga.. og maður verður virkilega þreyttur eftir þessar æfingar. En maður hlakkar bara til þegar frumsýningn verður: ) svo verður haldið á akureyri eftir hana. Og það verður vonandi stuð! Við dansgellurnar og Nanna munum meika það ;) haha, eða við sjáum nú til með það...

Mér gengur nú ekket sérlega vel í skólanum um þessar vikur, en vona að það lagist og reyni að standa mig betur þótt það sé mikið að gera svo maður nái nú vorprófunum blessuðu..  Svo er ég alveg hugmyndalaus mig vantar að skrifa um eitthvað í heimspeki. Þarf að gera ritgerð. Og skrifa eitthvað sniðugt má vera hvað sem er.  Endilega komiði með hugmyndir! Þarf að tengjast eitthvað Siðferðilega. Endilega skjótið eitthverjum hugmyndum hehe.

Enjæja held þetta sé gott í bili. Ég er farin á æfingu.
Hafdís Hauks

fashion.jpg fashion image by bar0018

01. apríl 2008 klukkan 19:34
Hafdís Hauksdóttir
3 athugasemdir
06mars

Somthing Pretty - Patrick Park

" When There's nothing left to burn, you have to set yourself on fire "

Fimmtudagurinn 6 mars kominn. 25 dagar í afmælið og bílprófið! tsss, styttist í þetta :] En allavega, þá sit ég heima núna undir sæng, það er ömurlegt veður úti.   Þannig ég nenni ekki að hreyfa mig sem eftir er! Kannski maður kíkir  eitthvað út í kvöld, eða kannski maður fái eitthverja heimsókn til sín hehe. Er bara búin að liggja og hafa það kósi og hlusta á tónlist. Mæli með laginu í Titlinum hjá mér ;)  hehe ( hef alltaf hafið nöfn á lögum þarna efst, flott lag)
Í gærkveldi var maður bara að vinna og hjörtur elskan var hjá mér til að halda mér félagskap hehe(a). Svo kíktum við út með Pálrúnu svo var bara haldið heim í bólið.

 Á næstunni er víst helgin, maður verður að vinna bara, kannski maður kíkir eitthvað út í sveitina til fólksins. Svo þarnæstu helgi verður líka önnur sumarbústaðarferð. Maður kíkir þangað líka?.. svo kemur páskarnir :D víí can't wait!

 En vá ég er svo boring hérna..  Kveð í bili. Kem með eitthvað fun blogg næst þegar eitthvað er að gerast XD   Btw. var að uppfæra speissíðuna. myspace.com/hhafdis


rocky.jpg rocky Horror image by Black-Betty-Boop








06. mars 2008 klukkan 18:17
Hafdís Hauksdóttir
2 athugasemdir
14febrúar

This Is The Life - Amy Macdonald


" You can call me alcoholic, but I call it a damn good time" 

Gleiðilegan Valentínusardag kæra fólk.
Jæja (gott byrjunarorð) skólinn er á fullu og rocky horror show líka. Skellti mér á fund á mánudaginn dróg halldór með mér, það er semsagt verið að setja upp leikritið " Rocky Horror Show" sem ég held að sé eftir aðvera mjög gaman!Á þriðjudaginn mættum við upp í pakkhús og þar fór kallinn með okkur í eitthverja leiki, sem mér leið ekki vel í ! haha en það var samt gaman, maður þurfti að leika allskonar fyrirbæri, Ristavél, Þvottavél, fíl, sterakall og nefndu það. ha ha, en ég gat skemmt mér vel þrátt fyrir kvíðann og óþæginleikann. Í gær hittumst við svo upp í sindrabæ og horfðum á myndina sjálfa, þar sem ég var ekki búin að sjá hana alla fannst mér hún bara nokkuð góð. Hlakka til að taka þátt í þessu =)

Í dag tekur vinnan við, og morgun og helgina en maður sleppir þessari ekki helgi í smá djúserí ;D  ég er búin að vera í fríi síðustu tvær helgarnar. Var stödd í bænum þær báðar. En er nú kominn heim til að vera. Allt að gerast núna, opna vikan er næstu helgi. Svo árshátíð  FAS föstudaginn 22. febrúar, þar sem Páll Óskar mun koma og halda okkur félagskap ;) Þetta er eftir að vera skemmtilegt djamm :)

Það styttist í bílprófið, bara einn og hálfur mánuður þangað til vúhú! og það er eftir að líða fljótt þangað til! Snemma í mars mun svo hann Halldór minn fá bílprófið eftir það verður svo farið í góða sumarbústaðarferð með liðinu, svo líður að páskafríinu og hún verður tekin með stæl ;) svo kemur bara að afmælishelgin mín og ætli maður geri ekki eitthvað skemmtilegt þá..

En jæja hvað eru svo ykkar páskaplön?

"Wine makes every meal an occasion, every table more elegant, every day more civilized"

This Is the life

* Systa gamla tók þessa mynd*

Litla skottan er nú komin á lappir hress og kát ;)

“I am I and you are you, and if in the end we are together, then it is beautiful.”

14. febrúar 2008 klukkan 13:49
Hafdís Hauksdóttir
5 athugasemdir
05febrúar

Tears Don't Fall

THE WORLD IS GOING TO HELL  AND IM DRIVING THE BUS


Halló, ég er komin úr borg óttans heim í sveitasæluna. Fór á Benny Benassi og Dave spoon skemmti mér bara vel.

En erfiðast í þessari ferð var að ég fór að kveðja hann afa minn sem er búinn að vera veikur. Ég og Heiðdís flugum í bæjinn á föstudaginn og keyrðum svo beint upp í landakot til afa. Svo dó hann á laugardaginn. = /     Hvíldu í friði


Ég kom úr bænum á mánudag, er ekki búin að gera neitt nema fara í skólann og fara svo heim að gera ekki neitt, frekar bored...
Horfði á Glatiador í gær. Snilldar mynd. Og er núna með Stellú í Orlofi í niðurhlaði, hehe. Klassa mynd. Hún klikkar ekki.

Já, svo fór hún blessuð þórgunnur gamla yfir á hinn endann á hnöttinn. Vona að allt hafi gengið vel hjá henni á leið þangað. Við stelpurnar töluðum smá við hana á msn þegar hún stoppaði í Hong Kong. Þar sat hún og var að borða. Svo allt í einu kom eitthver kínverji og reyndi að stela matnum hennar. Haha, alveg yndislegt.  Þetta fannst mér hlægilegt. Svo heyrði ég aðeins í henni í gær á msn þar var hún komin til ástralíu og hún sagði að þetta væri ekkert nema æðislegt þarna. Góð fjölskylda og bara algjör lúxus þarna fyrir utan hitann hann er alveg upp í 40°hita. Puff, það er nú annað en hér. Maður rétt svo stígur út fyrir dyr þá er maður kominn með samanfrosnar varir og tærnar rétt dottnar af manni.
En vona að ég heyri í skottunni sem fyrst aftur, minni á síðuna hennar
www.flickr.com/photos/thorgunnan og www.blog.central.is/thorgunnan

A newspaper consists of just the same number of words...

En ég hef voða lítið í fréttum núna.  Seigi það gott.
Hafdís



 

05. febrúar 2008 klukkan 21:33
Hafdís Hauksdóttir
2 athugasemdir
31janúar

You,Me, whipped cream and handcuffs. Any questions? XD

Svona aðeins að skjóta eitthverju innáþessa síðu svona meðan næsta blogg flýgur inn hehe þannig endilega kíkið á þessar spurningar og svarið  :)  (stal spurningum á síðunni hennar þyrí elskunnar takk ;*)


Hvað heiti ég?

Hvað er ég gömul?

Hvar kynntumst við?

Hvenær sástu mig seinast?

Hvað hefuru þekkt mig lengi?

Drekk ég?

Reyki ég?

Hvenær á ég afmæli?

Á ég systikini?

Hvað finnst mér skemmtilegt?

Er ég fyndin manneskja?

Hverning tónlist fýla ég?

Er ég feimin eða ekki?

Bryt ég reglurnurnar?

Á ég sérstaka hæfileika?

Er ég sannur vinur?

Munduru kalla mig 'gelgju-iþróttafrík-emo-híppí-hyper-nördaleg- annað hvað?

Hvað er skemmtilegasta sem við höfum gert?

Hefuru knúsað mig?

Saknaru min, helduru að ég sakni þin?

Hvað er uppáhalds maturinn minn?

Hefuru verið hrifin af mér?

Hvað kallaru mig?

Hverjum er ég hrifin af?

Hver er minn versti ávani?

Er eitthvað sem þú vilt segja við mig en bara getur ekki?

Hvað er það ?

Erum við vinir?

31. janúar 2008 klukkan 16:09
Hafdís Hauksdóttir
5 athugasemdir
24janúar

Crosses - Jose Gonzalez

Ashes 2 Ashes, Dust 2 dust, Life is to short so party we must!


Góðakvöldið, jáhh hvar á að byrja?

Byrja bara á jólunum þau voru bara alveg yndisleg, rólegheit, vinna, og svo var hámað í sig mat og nammi. Þetta týpiska=)  Fékk fullt af frábærumjólagjöfum. Svo var farið í bekkjarpartý annan í jólum, og það var bara mjög skemmtilegt kvöld. Maður skellti sér svo á ball. Skemmti mér bara helvíti vel.
Svo var maður bara að vinna á fullu milli jól og ný árs. Um áramótin fóru systkinin bara burt og ég var ein með mömmu og pabba og tímoni. Það var ágætt. En svo ætlaði maður nú að kíkja eitthvað út um kvöldið enn það var bara ekkert að gerast! alveg ömulegt veður og bara ekki gaman.
Svo byrjaði bara nýja árið. Maður er byrjaður í skólanum og tónlistinni og svona. Og það er bara  búið að ganga alveg ágætlega. Mér líður samt eins og ég sé ekkert búin að fara út síðan árið byrjaði. Og áramóta heitin mín voru að skemmta mér meira á þessu ári en hinu. Hahh, það byrjar vel. En jú á morgun verður nú stóra kveðjupartýið fyrir hana þórgunni mína, sem er á leið til Ástralíu. Puff, geturu ekki farið aðeins lengra í burtu? haha, en ég er eftir að sakna þessara skottu! ;'(

Næstu helgi ætla ég svo að skella mér á Benna Benassi! Það verður örugglega gaman, eða vona ég:) Og ætla að fara versla mér líka nokkrar flíkur og svona híhí aðeins að bæta í skápinn.

Humm Humm, Já undafarna daga er maður búinn að liggja í spilnum, ég og systa alveg húttar á einu spili. Hörku spenna á hverju kvöldi hérna hehe. En já ég er búin að hafa það gott hérna með Heiðdísi sem er komin heim í veikindafrí. Fór í aðgerð og kom bara vel útúr henni. Hún getur allavega orðið labbað vel og svona. Við erum duglegar að fara í litla göngutúra á kvöldin með tímon gamla með okkur. :)  Já, maður er sko búinn að hlægja sig máttlausa með henni.
Ahh verð svo að seigja ykkur frá því, mig er búið að dreyma skrítna drauma undanfarna daga, um daginn dreymdi mig mikið blóð renna út um allt og ég kíkti í svona draumráðningabók þar stóð að það þýddi - slysfarir - svo dreymdi mig svona blóðpoll eitthvern og ég kíkti og það þýddi - að verða fyrir geðshræringu - svo dreymdi mig að ég hafði verið að keyra eldgömlum vagni og það þýddu - mikil sorg - svo dreymdi ég Tóbak sem þýðir - Veisla (partý)-  allt svoldið creepy þar sem ég trúi frekar mikið á drauma. Ruglaða ég. eða?  slysfarir, geðshræring, sorg, partý  en nóg með þetta bull :) hehe

Enn aaa já svo styttist í bílprófið! Varið ykkur bráðum fer litla ljóskan að rúnnta um göturnar. híhí,  Já Hanna Guðrún og Bryndís Rós gjellur eru nú byrjaðar að valsa um göturnar=) hehe til hamingju stúlkur með prófið;* og jónsnorri líka! ekki má gleyma honum.

En ég ætlaði mér að vera svo dugleg að blogga um jólin og svona svo ætlaði ég að gera smá "annál" og svona enn það var auðvitað ekkert úr því. Löt.
Þannig ég held að þetta sé bara gott í bili. Ég ætla að fara setja inn gamlar myndir =) sem ég fann í tölvunni.
Endilega skiljið eitthver skemmtileg komment handa mér hí hí.

Verið sæl - Hafdís grjón

IMG_9526.jpg picture by hafdish


Erum við ekki aumingjaleg (a) híhí
24. janúar 2008 klukkan 23:13
Hafdís Hauksdóttir
7 athugasemdir
18desember

Lust - GusGus

Ætla hafa það svakalega stutt. Er stödd í reykjvaík er búin að kaupa helling af jólgjöfum =)  kem alveg örugglega heim á morgun eða laugardaginn.  Og kem þá með heljarinnar blogg þegar ég kem heim. hehe. En það er allt gott að frétta hér er að fara á Saw 4. Þannig seigi bless. 
18. desember 2007 klukkan 18:45
Hafdís Hauksdóttir
5 athugasemdir
08desember

Over The Pond - The Album Leaf

" To my girls; here's to the shit we talk, the guys we stalk, the way we shop, the laughs we can't stop, the gossip we spill, the looks that could kill, to havin'  each other back, to the next morning gettin' the facts, downin'  the beers and spillin'  the tears.. we'll  stay together through the years."

Daginn daginn, mín bara vaknaði snemma á laugardagsmorgni fór í sturtu og tók upp nokkrar skólabækur og svona, og ákvað svo að skella upp einu léttu laugardagsbloggi. Kannski maður seigir smá frá seinustu helgi þar sem xxx rottweiler komu og héldu uppi smá skemmtun sem var bara alveg ágæt helgi! skemmti mér alveg helvíti vel. Svo er maður bara búin að rúlla gegnum vikuna með skólabókunum. Fór í munnlegt próf til hennar Áríar elskunnar og svo fór ég í íslenskupróf á fimmtudaginn. Svo er það bara næsta vika. Prófvika. Og svo djamm eftir hana =) svo er það fimleikasýning og svo reykjavíkin! Jólainnkaup, fara að kaupa þessar blessuðu jólagjafir. En ég er búin að ákveða nokkrar. Þetta er allt að koma til.  ´

 í gær  kíkti maður aðeins út, það kvöld endaði nú skrautlega, og ætli maður fari ekki bara að læra og læra í dag og svona, stelpuskjáturnar mínar ætla að kíkja til mín í kvöld, kannski við eldum okkur eitthvað gotterí og svona..
Ægir fór á sjó í fyrradag og kemur ekki fyrr en í næstu viku;/  een maður sér hann bara þá ;D hehe, en jæja ég hef nú bara lítið spennandi í frétttum um þessar mundir, blogga næst og þá kem ég sko með eitthverjar krassandi fréttir. hehe

Oog kommenta svo

The hardest thing to learn in life...

Hún þórgunnur mín tók þessa mynd, hún er alveg ljósmyndasnillingur skal ég seigja ykkur;) , mæli með að kíkja á síðuna hennar www.flickr.com/photos/thorgunnan
Og já hún er að koma heim næstkomandi þriðjudag, hlakka til að sjá þig skotta

08. desember 2007 klukkan 13:09
Hafdís Hauksdóttir
2 athugasemdir
23nóvember

E-talking - Soulwax


"Pay no mind to those who talk behind your back, it simply means that you are two steps ahead"

Sælt verið fólkið,  föstudagurinn er strax kominn! alltof fljótt að líða.  Jólin eru bara alveg að fara ganga í garða ;] Og allar helgar útplanaðar. Næstu helgi verður 30.nóv dæmið sem verður. Reyndar á ég frí helgina þar á eftir ætli maður geri ekki eitthvað af viti sú helgi. Svo verður bara strax kominn 14. des og þá ljúka prófum og verður þá ekki eitthvað lokaprófsdjamm ? heyrði ég etthverstaðar.  Það verður allavega hjá mér xD hehe, svo verður þessi stóra fimleikasýning 15. og svo verður bara haldið til rvk-ur 17 .des til að versla jólagjafir og svona.  

En, já á 1991- síðunni vorum við einmitt að tala um annan í jólum, sem ég er bara nokkuð spennt fyrir, búið að redda stóru tómu húsi og læti,  eða hún Ester sæta reddaði þessu fyrir okkur;* og þetta verður bara gaman! 
Þyrí mín verður stödd í danmörku þannig hún verður ekki  með;/ en hún Una kemur frá Akureyri hlakka til að sjá stelpuskjátuna =) 
 
En jæja best ða fara að gera eitthvað.
Endilega kommenta svo eitthvað skemmtilegt;)

23. nóvember 2007 klukkan 11:57
Hafdís Hauksdóttir
6 athugasemdir
19nóvember

Untitled

" Make your dreams come true, don't give up the fight, you will be alright, because there's no one like you ... in the universe"

Góða Kvöldið, ákvað að skella upp einni svona bloggsíðu. Ætli maður verði ekki að falla inní hópinn verða bloggari  :) Ég var að föndra við hana áðan, fór síðan og skellti mér aðeins á rúntinn með Steina gúmmísvepp og Halla Tan og Stellu skvísu.

 Fór á ágæta fimleikaæfingu í dag vorum að æfa fyrir stóru jólasýninguna sem verður 15.des. Vonum að þetta verði flott sýning. Við fimleikafélgið skelltum okkur einmitt suður um helgina til að prófa nýja ármannshúsið og það var bara mjög gaman. Heimsótti einmitt hana Heiðdísi mína sem er fárveik í bakinu greyið, ég hjálpaði henni að klæða sig í sokkana á morgnana og svona. Vona að þú lagist sem fyrst he
dís mín. En svo á Sunnudaginn fórum við fimleikafélagið að horfa á stórt trompmót sem var mjög flott. Skemmti mér ágætlega. Og svo var haldið heim um kvöldið. Þakka fyrir góða ferð allir.

Svo næstu helgi verður örugglega kíkt út á pakkhúskvöld og svona. og svo verður bara unnið út í eitt. Svo verður víst hörku ball/tónleikar? næstu helgi með Rottweiler og eitthverri annari hljómsveit. Vona að það verði bara gott djamm.

jæja, fyrsta blogginu er lokið held ég nú bara, ætli maður skelli ekki The O.C á skjáinn og hafa það kósí.

Hafdís


fashion8.jpg Fashion image by kindredcrow

19. nóvember 2007 klukkan 23:44
Hafdís Hauksdóttir
10 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Hafdís Hauksdóttir
  • Staður: Höfn
  • Atvinna: ekkert í augnablikinu
  • Hjúskaparstaða: Ægir=*
  • Um mig: ,,
  • Annað: Blah

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Hafdís Hauksdóttir
  • Staður: Höfn
  • Hjúskaparstaða: Ægir=*
  • Um mig: ,,

Prófíll

  • Nafn: Hafdís Hauksdóttir
  • Staður: Höfn
  • Atvinna: ekkert í augnablikinu
  • Hjúskaparstaða: Ægir=*
  • Um mig: ,,
  • Annað: Blah

Prófíll

  • Nafn: Hafdís Hauksdóttir
  • Staður: Höfn
  • Atvinna: ekkert í augnablikinu
  • Hjúskaparstaða: Ægir=*
  • Um mig: ,,
  • Annað: Blah